Mark Sellers er áhugaverður fýr. Eftir að hafa yfirgefið klassískt tónlistarnám og gengið í rokkhljómsveit, áttaði hann sig á því að hann var betri í því að reka band en að spila í bandi. Hann náði góðum árangri í fjármálaheiminum en gaf þann ferill upp á bátinn til þess að stofna og reka barkeðju á heimaslóðum sínum í Grand Rapids. Hér veltir hann því fyrir sér hvað það þurfi til þess að vera góður fjárfestir í stuttum fyrirlestri fyrir MBA nema í Harvard árið 2007.
Spoiler: að vera MBA nemi í Harvard er ekki eitt af skilyrðunum.